þriðjudagur, júní 30, 2009

Jæja öllsömul,

Þá erum við komin heim úr ferðalaginu mikla. Þetta var alveg stórskemmtilegt, og ég hendi inn ferðasögunni bráðum.

Maður setti allt á fullt þegar heim var komið. Reif strax uppúr töskum og þvoði sem vitlaus væri. Fór svo í hendingskasti útí garð í gær og tók þar enga fanga - heldur drap allt illgresi sem á vegi mínum varð. Ég fékk nú reyndar góða hjálp frá Ægi Daða sem slátraði fíflunum einsog hann hefði aldrei gert annað :-)



Frosti var nú ekki mikið til í að hjálpa, en fylgdist grannt með og sá til þess að enginn slóraði :



Knús á alla,
-Sunna.

2 Comments:

Blogger Berglind said...

hahaha.. Frosti flottur á kantinum, maður myndi sko ekki þora að slá slöku við undir hans vökula auga !

8:50 e.h.  
Blogger Jón Sindri said...

Haha! Frosti var örugglega vörður í þýskum þrælabúðum í fyrra lífi. Ekkert slor.

12:58 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home