þriðjudagur, júní 30, 2009

Hahahahahahahahahaha !!!

Grímseyingurinn er ekki bara skemmtilegur og fallegur - heldur líka upprennandi vidjólistamaður. Hér gefur að líta myndband sem hann stalst til að búa til, meðan stjúpa hans gekk í heimilisstörfin.

Þetta er túlkun hans á draugaganginum í Hinrikshúsi, með Evróvisjón ívafi. Njótið :

video

-Sunna & Ægir.
Jæja öllsömul,

Þá erum við komin heim úr ferðalaginu mikla. Þetta var alveg stórskemmtilegt, og ég hendi inn ferðasögunni bráðum.

Maður setti allt á fullt þegar heim var komið. Reif strax uppúr töskum og þvoði sem vitlaus væri. Fór svo í hendingskasti útí garð í gær og tók þar enga fanga - heldur drap allt illgresi sem á vegi mínum varð. Ég fékk nú reyndar góða hjálp frá Ægi Daða sem slátraði fíflunum einsog hann hefði aldrei gert annað :-)



Frosti var nú ekki mikið til í að hjálpa, en fylgdist grannt með og sá til þess að enginn slóraði :



Knús á alla,
-Sunna.

laugardagur, júní 06, 2009

Vid fín, nýklippt á kaffihúsarápi :



þriðjudagur, júní 02, 2009

Mussisjúk

Hansara varrar bleytar og blíðar

Fagrari harri aldri mær bíðar

Og ongantíð møtti mær tunga so mjúk

Ella eri eg bara mussi sjúk



Hansar varrar mær eru ein gáta

Tær kyssa upp á ein heilt annan máta

Og ongantíð møtti mær tunga so mjúk

Ella eri eg bara mussi sjúk



Hansara varrar tær gera meg villa

Lokka meg nærri og kitla meg illa

Nei ongantíð møtti mær tunga so mjúk

Ella eri eg bara mussisjúk



Man eg nú nakrantíð fara at vita

Ella so má eg so barasta gita

Varrar og kossar ein kensla so mjúk

Og eg eri helst bara mussisjúk


(eivör)

-Sunna.

miðvikudagur, maí 27, 2009

Smá kitl-blogg um ferðalagið sem er framundan :

Byrjum á að fara til Seyðisfjarðar :


Lendum í Hanstholm Laugardaginn 13.júní :


Svo brunum við niður til Niðurlanda, nánartiltekið til Eindhoven þarsem hún Assa mín fagra býr núna :


Þýskaland fær svo að njóta nærveru okkar skötuhjúa, þar munum við gista eina nótt - líklegast á svona zimmer frei dæmi :


Lokaáfangastaður er svo vitanlega Slóvenía :-)


....yndislegt yndislegt yndislegt ! Hugsið ykkur bara hvað maður á gott ! Það er bullandi kreppa, en við samt á leið í frábæra reisu. Gaman :-)

-Sunna.

föstudagur, maí 22, 2009

Stundum er fyndið að vera á e-mail lista hjá stóru fyrirtæki. Maður fær stundum allskyns snilldarpósta. T.d. er stundum verið að bjóða manni að leigja þyrlur eða önnur loftför... og svo koma svona póstar einsog þessi frá hinum dularfulla Mike Hammer :

"Hello

Execuse me to bother you.
We own Japan, Germany, the United States...The company mobile product.
The specialized product include: Motorcycles ,Vapor boat ,Snowmobile ,Cross-country
They are new, first, original package.
Here,You can less salary acquire you to want thing.
If you want to acquire them,
Please contact us.


Web: www.acmot.com/
If bothered you, please forgive.
Good luck"

....ég las þetta með Borat-hreim, það virkar mjög vel.

Góða helgi,
-Sunns.

þriðjudagur, maí 19, 2009

fimmtudagur, maí 14, 2009

Hahahaaaa.... hlaðmannagrín :



Eigið góðan fimmtudag :-)

-Sunna.