fimmtudagur, nóvember 27, 2008

Og áfram í anda jólanna :

Það þekkja allir kók, og margir sem meiraðsegja tengja kók við jólin. Kannski ekki skrýtið :





Skemmtilegt. Já.
Hér er líka athyglisverður fróðleikur um vatn og kók :

Vatnið :
-75% Bandaríkjamanna eru með krónískan ofþurrk. (Á sennilega við helminginn af íbúum jarðar)
-Hjá 37% Bandaríkjamanna er þorstaskynjunin orðin svo slök að hún er oft túlkuð sem hungur.
-Jafnvel vægur ofþurrkur getur hægt á brennslukerfi líkamans um 3%.
-Eitt glas af vatni nægði til að slá alveg á hungurverki seint að kvöldi hjá næstum 100% þátttakenda í könnum hjá Háskóla í Washington.
-Ónóg neysla af vatni, er í FYRSTA SÆTI yfir það sem veldur þreytu yfir daginn.
-Niðurstöður úr einni könnun gefa til kynna að drekki fólk 8-10 glös af vatni yfir daginn gæti það létt á bakverkjum og liðaverkjum hjá allt að 80% þeirra sem þjást af þessum verkjum.
-Ef vatnið í líkamanum minnkar um aðeins 2% getur það valdið lélegu
skammtímaminni, erfiðleikum með einfalda stærðfræði og skorti á einbeitingu við lestur á tölvuskjá eða annað prentmál.
-Að drekka 5 glös af vatni á dag dregur um 45% úr áhættu á krabbameini í þörmum auk þess sem það getur dregið allt að 79% úr áhættu á brjóstkrabba og lækkar áhættu karlmanna á blöðruhálskrabbameini um 50%.

Og kókið góða :
-Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með 10 lítra af kóki bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
-Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.
-Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.
-Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.
-Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kóki yfir rafgeymatengslin.
-Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu): Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.
-Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið leysir upp fitublettina.
-Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.-Virka efnið í kók er phosphoric acid. Ph í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.
-Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru notuð á bíla sem annast flutning á MJÖG ÆTANDI EFNUM.
-Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.

Mér finnst vatn gott og kók líka....
En jólin eru best ! :-D

-S.

miðvikudagur, nóvember 26, 2008

Aðventan nálgast :-D

Það er alltaf yndislegur tími.
Ég er nú mikið jólabarn - en í ár ætla ég að njóta jólanna og undirbúningsins EXTRA vel ! Og vera alveg óþolandi við fólk :-D Syngjandi jólalög, bryðjandi piparkökur og skreyta mig með slaufum og krulluborðum ! Hahaha.

Svo er ég með uppástungu :
Að allir sem skráðir eru á facebook taki sér allavega 5 klukkutíma í desember (sem þeir annars hefðu eytt á fésbókinni blessaðri) og geri eitthvað annað ! T.d. Lesi góða og uppbyggilega bók, ..fyrir sjálfan sig eða upphátt fyrir aðra. Fari í heimsókn til einhvers sem þeir sakna. Risti möndlur og gefi gangandi vegfarendum.... Það er endalaust hægt að láta sér detta eitthvað fallegt og sniðugt í hug ! :-)

Og annað :
Í ár finnst mér að allir eigi að senda bara jólakort - ekki vera að kaupa pakka handa öllum í fjölskyldunni.

Þar hafiði það.
Knús til ykkar allra.
-S.