fimmtudagur, september 21, 2006

..það styttist í borgarferð..

Tilhlökkunin er gríðarleg. Hlakka svoooo til að hitta systur mínar. Þær eru nefnilega snillingar. ....og ég hlakka auðvitað til að sjá ykkur hin líka.
Svo hef ég grun um að flufffélagsteitið annað kvöld muni lukkast vel. Þetta eru svoddan ruglukollar og stuðboltar sem vinna með mér.

Ég var að vafra um veraldarvefinn áðan og rakst á þessa mynd:



Það eru til glæpir gegn mannkyni... þetta mundi falla í þann flokk !
Herregud ! Fyrst flissaði ég.. en svo varð ég bara soldið hrædd. Augnaráð mannsins gefur nefnilega til kynna að hann sé ekki að grínast !

......ég er bara fegin því að hann búi erlendis, manndýrið.
Veit ekki hvurslags geðshræringakast maður fengi ef maður mætti honum á Laugaveginum :-)

Læt þetta duga í bili,

-Sunna city girl.

miðvikudagur, september 20, 2006

.....jájájájá.....

Þá er mín gífurlega langa vinnuvika hafin.
Er að vinna í dag OG á morgun ! Finnst ykkur þetta í lagi !!?? Alltof mikið sko !

Ég er búin að ákveða að fara Suður á fimmtudagskvöldið strax eftir vinnu.
Mín elskulega systir Anna Þóra ætlar að sækja mig og hefur tekið að sér hina margumtöluðu hárlitun. Hehehehe...
Ég gisti hjá henni eina nótt og fer svo í Bláskógana.

Á föstudagskvöldið er förinni heitið á Kaffi Sólon þarsem hið mikla Fluffffélagspartý mun fara fram.
Helena og Anna Þóra, mínar fögru systur, ætla svo að koma að hitta mig eftir það.
Mikið hlakka ég til :-D
Kíkjum örugglega á Ölstofuna eftir Sólon í einhvern kjaftagang. Allir velkomnir !

Ahh... mengun, malbik og sorinn í Reykjavík. Þetta verður yndislegt !

......aðallega hlakka ég nú samt til að hitta fólkið mitt. Hef ekkert komið síðan í júlí. Og þá var ég bara í eina nótt.
Þarf klárlega að fara að standa mig betur í heimsóknunum.

...............................í tilefni af því að ég er bara að vinna tvo daga þessa viku, og Flugfélag Íslands ætlar að bjóða mér til Reykjavíkur OG bjóða mér uppá bjór heilt kvöld, ætla ég að setja inn fallega mynd af vinnustaðnum mínum og segja : Flugfélag Íslands - you rock !



..bjúrífúl erport, ó jess.

_____________________________________
Þetta er stjörnuspáin mín í Mogganum í dag :

Nautið er hluti af landslagi sem aðrir virða fyrir sér í dagsins önn, og til mikillar prýði ef út í það er farið! Ef þú þarft afsökun til þess að verja tíma og peningum í sjálfan þig, skaltu líta á það sem umhverfisfegrun.

..ég gat ekki annað en brosað útí annað..
_____________________________________


-Sun.

sunnudagur, september 17, 2006

...Ég er leiðinleg...

Það er vinnuhelgi hjá mér núna.
Og ég kom heim kl. 19:00 í gærkvöldi og fór beint uppí sófa og sofnaði.
Hundleiðinleg alveg.

En ég er allavega úthvíld í dag.
Eða ætti að vera það. En af einhverjum dularfullum ástæðum er ég soldið þreytt ennþá.
Líklega hef ég bara sofið of mikið :-)

Annars er það helst í fréttum að heimilið er ekki eins tæknivætt og það var.
Harðidiskurinn í i-book tölvunni er ÓNÝTUR ! Og tölvukallinn er að reyna að bjarga öllum myndunum okkar og fleiri gögnum.
Við skulum vona að það takist.
Annars fer ég að grenja !

Á morgun og hinn er ég í fríi.
Er að láta mig dreyma um að fá Árna til að hjálpa mér að lita á mér hárið. Það gæti orðið skemmtileg og gefandi lífreynsla.
Árni horfði reyndar á mig einsog ég væri endanlega búin að tapa mér þegar ég bað hann um þetta í gær :-)

Við sjáum hvað setur.
Kannski kem ég suður á föstudaginn með appelsínugult hár ! Hahahaha...

Yfir&út í bili,
-Sunna.