laugardagur, ágúst 11, 2007

Ó GUÐ !!!

Heimurinn verður að fá að sjá þetta ! Svona GULL má ekki geyma ofan í skúffu :



Já, verði ykkur að góðu. Ég tek við peningum og allkyns þakklætisvottum fyrir að hafa bjargað ársfjórðungnum hjá ykkur. Ostakökur og fimmþúsundkallar eru vel til þess fallin að þakka fyrir svona snilld.

-Sunna Föroyska.
Oooooog 66 kr.

....ég er ennþá að lofa englana sem sögðu mér að kaupa dollarana fyrir mánuði síðan. Újehhh...

Sunnfríður er stödd í vinnunni einsog er. Í dag mun hún skila góðum 13 tímum af vinnu. Og allan tímann hlakka til að eiga kósýkvöld með Reykjavíkurfaranum sínum.
Video og góður matur í yndislegum félagskap - það klikkar ekki.
....svo er ég líka alveg rétt bráðum að fara til úgglanda.

Á næstu tveimur dögum... dagurinn í dag er meðtalinn, þarf ég að fara yfir allt efnið í enskunni og undirbúa mig vel fyrir prófið sem er á mánudaginn. Ég þarf að fara í massíft mani/pedi verkefni (þið sem ekki vitið hvað það er vinsamlegast aldrei lesa síðuna mína aftur), ég þarf að klippa aðeins á mér hárið, ég þarf að troða uppí mig rapid white gómnum allavega einusinni, lita á mér augabrúnirnar og setja á mig pínu brúnkukrem.

Ég meina - ég er að fara til New York, það er aldrei að vita hvern ég hitti. Kannski verð ég bara uppgötvuð og mér troðið í America´s Next Very Fat & Old Top Model. Maður veit aldrei. Best að vera bara vel undirbúinn.
Svo var nú verið að vara við einhverri djö%#"!/ geislaárás... Ég verð þá allavega fallegt lík með vel snyrtar augabrúnir. (já bla bla, ég veit það má ekki segja svona)
En ég gerði það nú samt ;-) Úff ég lifi svo hættulega - ég er jaðarbloggari.
_______________________________________________________

Þegar ég sé svona myndir af sjálfri Marilyn Monroe þá finnst mér bara töff að ég hafi þessi aukakíló mín. Svona boddí er flott og kynþokkafullt, og andlitið verður fyllra og sléttara. Nammmmm.





-Sunns.

föstudagur, ágúst 10, 2007

Fjúúúúkkkk !!!



Einsgott að ég keypti dollarana mína um daginn. Þá stóð hann í 59 kr. ...en er núna kominn í 64 kr. !!! .....hjúkkett Mc.Frúkkett, einsog ég myndi segja ef ég væri að tala við Helenu syz.
Já ! Við erum afskaplega eðlilegar ! Afskaplega. Já-uuuuu, nei-uuuuu.....

Það er sko aldeilis farið að styttast í ameríkuferðina. Aðeins 5 dagar af nagandi spennu eftir :-D *ískr* ....ohhh lord, þetta verður æði. Loksins komin í sumarfrí, loksins komin til Ameríku, loksins smá kvolití tæm með Berglindi, og loksins búin í fjarnáminu (..sem ég ætla að halda uppá með því að skrá mig í meira fjarnám í VMA) OG loksins fær maður að fara á alvöru tónleika Í RIIIIISA tónleikahöll !!! VÚHÚ !

-Sun.