laugardagur, maí 24, 2008

JESSSSS JÚRÓVISJÓN !!!

ÁFRAM ÍSLAND !

Ég er afskaplega afskaplega afskaplega spennt !
Það verður góður hópur saman kominn útá Dagverðareyri hjá Kristjönu og Stebba. Við Árni, að sjálfsögðu og Ásta og Hlynur ætla að heiðra okkur með nærveru sinni.

Það verður grill stemning... mig grunar að það verði aaaallllttttoooff mikill matur í boði. Sælkerar hér á ferð ;-) hehe.
Þetta er jafnframt í fyrsta sinn í sumar sem ég fæ grillmat. Einsgott að venja sig við.... "let´s put another shrimp og the barbie" - og allt það ;-)

16 dagar gott fólk.
-S.

þriðjudagur, maí 20, 2008

...oj oj oj...

Fallin með 7 !!! MEÐ SJÖÖÖÖÖÖÖ !!!

..................taka tvö er eftir 10 daga.
Þetta kemur :-D Hahahaha.
________________________________________

Það sem heldur mér gangandi (fyrir utan manninn minn auðvitað) er tilhlökkun mín. Ferðin "hin stórkostlega" nálgast óðum.
Ég er búin að sækja um Travel Visa, vegabréfið er í gildi svo það er nánast allt klárt. Á bara eftir að henda nokkrum brókum í tösku og svona. Já.... ég verð stödd alein í Singapore áður en ég veit af. Note to self : Fá mér núðlur í Singapore.
Þetta verður ævintýri.

*hlakkatilandvarp*

-Sunna Sjöa.