föstudagur, júní 29, 2007

Já... þetta er föstudagsfílingurinn !



.....já, þakkið mér seinna :-)

-Sunna, average homegirl.

fimmtudagur, júní 28, 2007

...ó guð...

Ég vona að hann klúðri þessu ekki. -----> Alkemistinn verður að kvikmynd.
Þá mun hann Laurence litli eiga mig á fæti skal ég segja ykkur !!!

....................mætti aukalega í dag kl.4:45. Er frekar syfjuð. Og fer að fara heim - ákvað að nýta tímann til að prenta út slatta af gögnum fyrir fjarnámið.

Gaman að læra :-D

Eigið góðan dag dúfurnar mínar.

BlessszzzzzzzZZZZZZZZ....
-Sunnnnnnn...

sunnudagur, júní 24, 2007

Nauj nauj nauj !!!

It´s alive !
Sunni er búinn að laaaasinn dauðans. Dauh-hau-hauðans !
Og núna er Árni lagstur í rúmið - ég þurfti reyndar að reka hann uppá spítala áðan (nei það er ekki læknavakt á Ak.)

...og læknirinn sparkaði í hann og gaf honum svo veeel sterkt pensillín, það var bara farið að grafa í hálsinum á honum - frekar svæsin streptokokkasýking í gangi. .....bððððöööö.....

Mér er skapi næst að skreppa í Adam&Evu og festa kaup á föngulegum hjúkkubúningi. Hann á það skilið litli húnninn, hann hugsaði svo vel um mig meðan ég var veik.
Ég verð svo óskaplega dyntótt og fimm ára þegar ég er lasin.

_____________________________________________________

Núna erum við með fullt hús af grænlenskum börnum. Nánar tiltekið 3 drengi. Svaka fjör ! Og ef þeir myndu borða hús þá væri ég heimilislaus... alveg ótrúlegt hvað fer ofan í þá af mat :-) ....þetta er ágætis æfing í að versla fyrir fjölskyldu (nei ég er ekki ólétt !).

Við höfum ekki undan að versla. Eitt sem er skemmtilegt við þeirra át, er hvað þeir elska ávexti. Þeir spæna í sig heilu knippin af banönum, OG perur og epli í kassavís. Íslensk ungmenni mættu taka þetta sér til fyrirmyndar. Reeeeeyndar drekka þeir soldið mikið af gosi svo að sjálfsagt núllar óhollustan hollustuna.
En nóg um inúítafóður.
_____________________________________________________

Í gær var Flugsýning hér á Akureyri. Mjög skemmtilegt... þótti mér að minnsta kosti :-) Listflug, þyrluflug og allskyns fjör. Að sjá þessar marglitu og fallegu rellur leika listir sínar varð ekki til að drepa niður þennan stórhættulega flugáhuga sem hefur tekið sér bólfestu djúpt í hjarta mínu :-)

Í gærkveldi hlýddi ég svo skipun míns elskulegs sambýlismanns sem rak mig út og gaf mér pening. Hehehehe.. gæti það verið betra ? Hann sagðist vera ömurlegur félagskapur því hann væri svo veikur. Ég tróð mér því uppá Ástu og Hlyn og át Peng´s með þeim og horfði á Spaced. Mjög notalegt.
Við Ásta röltum svo á Amour og hittum Klöru. Vættum kverkarnar með örlitlum bjór, og trítluðum svo heim á kristilegum tíma. Svo er ég auðvitað svo mikil eðalskvísa og dönnuð með eindæmum að ég bauð Ástu innfyrir í samloku og kakó.
Södd og sæl skreið ég svo uppí rúm og knúsaði minn ofursveitta og fárveika kærasta.

.....ohhh já þetta var vooooðalega notalegt kvöld.

Bless í bili, ...sagði kallinn á Kili.

-Sunni.