Vei vei vei !Ein skemmtilegasta helgi í laaaangan tíma er að baki.
Föstudagur: Var í fríi. Vaknaði samt eldsnemma og fór í
klippingu. Svo fór ég að
fljúga - í vondu veðri. Þurftum að snúa við vegna ókyrrðar og lélegs skyggnis :-) ...gaman að fá að prófa það.
Svo lærði ég aðeins. Dúleg stelpa.
Hössi vinur hans Árna kom að sunnan og við áttum skemmtilegt kvöld öll saman - 3 amigos.
Laugardagur:3 amigos skelltu sér útí sveit í skírnarveislu.
Bjössi og Eva voru að skíra litla prinsinn, hann
Mikael Leó. Við rétt náðum athöfninni - vorum sein fyrir því Vetur Konungur ákvað að 6.október væri kjörinn fyrir hálku og snjó. ...við vorum á sumardekkjum.
Veitingarnar og skreytingarnar í veislunni voru æði. Við átum á okkur gat og þurftum svo að rjúka til baka.
Árni og Hössi voru að fara á Þelamerkurskóla endurfund
(...reunion) og ég á Greifann í mat með
vaktinni minni.
Jónasi og
Kára samstarfsfélögum mínum tókst svo hið ómögulega... Náðu mér í
Sjallann. Allra fyrsta skipti Sunnfríðar í Sjallanum... Og mikið roooosalega var gaman :-D
Margir snillingar þarna saman komnir - sem allir fóru á kostum.
Ég vil þakka öllum kærlega fyrir sem áttu þátt í því að þessi helgi varð svona frábær :-)
-Sunna.