föstudagur, ágúst 08, 2008

Vinnuhelgi....

...sem er bara fínt !
Já - þetta er rétti andinn !

Við erum "flutt" aftur heim, eftir að hafa notið sælunnar á Björgum III til hins ýtrasta. Frosti virðist hafa fundið sinn innri veiðimann í sveitinni. Sá hefur legið í dvala alllengi... tja, bara síðan hann fæddist. Greyið hefur nú stundum komið inn með hálfrotnaða skógarþresti, illa lyktandi ýsuroð og sælgætispoka.
EN, nú hefur skyndilega orðið breyting á, hann kom inn með ferskan, lifandi skógarþröst í gær og var hann vel stór !
Það var þó ekki skógarþröstur í matinn hjá okkur í gær.

Svo langaði mig bara að minna ykkur á að ég var í Ástralíu og að ég er ógeðslega töff :



Bless í bili - og góða helgi !
-Sunny The Surfer.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home