þriðjudagur, október 07, 2008

Jájá,

Nú væri gott að eiga saumavél.
Eiginlega er ég hundfúl að eiga ekki saumavél.
Á næstu misserum verður ekki mikið um fatakaup, eða að peningum verði varið í dýr áhugamál. Með einni góðri Husqvarna væri hægt að sameina hvorutveggja : Sauma sér ný föt, tja.. eða breyta gömlum, og eiga skemmtilegt áhugamál í leiðinni.
Hver veit, svo lýkur kreppunni og maður er orðinn svo hrikalega fær á saumavélina að allir vilja fötin manns og marrr bara verrrur milli !!!
Ég myndi byrja á því að sauma mér svona kjól :

Flottur.

Já, gott að vera bjartsýnn. Gott að hafa hugmyndaflug.
Elur kreppan ekki af sér athyglisverða listamenn ?

Svo langar mig að henda hér inn myndum sem tengjast Rússlandi. Takk Pútín fyrir að bjarga okkur, ég vissi að þú værir fínn kall !





Já, gaman að þessu.
Veriði svo bjartsýn - íslenska leiðin er : Þetta reddast allt saman !

-Sunniska Russski.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá hvað ég vil giftas konunum með rifflana.
Kveðja
Kardinálinn

3:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Pútín reddaði málunum. En í framhaldinu af þessu.. ætli við förum að sjá meira af rússneskri flugumferð á vellinum? :-D

kv. JSJ

8:29 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home