miðvikudagur, júlí 15, 2009

Halló allir :-)

Hér gefur að líta nokkrar afar fagrar myndir af Ægi Daða. Þessar eru teknar við matarborðið. Og ber að geta að stjúpan hvatti hann til dáða í þessari einsmanns grettukeppni, sem hann sigraði með yfirburðum :







Einstök veðurblíða hefur verið á Akureyri frá því að við komum heim frá Slóveníu.
Í dag er þó örlítill haustbragur í lofti, og því við hæfi að minna sig aðeins á sólardagana :







Verði ykkur að góðu,
-Sunna.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég ætla nú bara rétt að vona að blogg séu ekki í útrýmingarhættu, þau verma manni um hjartarætur eins og gömul lopapeysa gerir í dögginni á köldum júnímorgni. Mikið er annars Skíma sæt í blómapottinum :) Helena

9:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst töff að þú sért að "rækta" skímur. Skímulingurinn dafnar amk vel þarna í blómapottinum! :-)

kv.
JNSNDR

12:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home