fimmtudagur, febrúar 08, 2007

Jæja gott fólk,

Nú vantar Sunnu smá hjálp.
Þannig er mál með vexti að það er verið að þrýsta soldið á mig af ákveðnu fólki hér í bæ að mæta á landsfund Vinstri Grænna.
Mig dauðlangar... og VG er minn flokkur. Einnig væri gaman að fá eitthvað annað að stússast hérna fyrir norðan, svona með vinnunni.... oooog held að þetta sé góð leið til að kynnast fólki :-)
Þrátt fyrir allar þessar góðu og gildu ástæður þá er ég eitthvað voðalega efins um að ég "geti" þetta... æji ég veit ekki hvernig ég á að útskýra þetta.

Segjið mér hvað ykkur finnst !

.....annars er ekkert að frétta svosem. Stóri bró og fjölskyldan hans er að koma til okkar um helgina. Ég hlakka svo til að ég er að springa :-D

Verið góð hvort við annað,
-Sunna.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sunna mín að sjálfsögðu mætirðu á landsfundinn. Svo sérðu bara til hvað þú treystir þér í og ekki!!!
Landsfundurinn er ábyggilega massastemning :o)
Knús Erla María

11:27 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég held að þú ættir frekar að fara í saumaklúbb heldur en að vera í vinstri grænum. Það er bara vitleysingar í þeim flokki. Afturhaldskommatittir sem að engum líkar vel við hehe

1:39 e.h.  
Blogger Sunna said...

uuuuu já - öll sjónarmið eiga rétt á sér. Ég er þó ekki sammála - held að það sé enginn starfandi kommúnistaflokkur á íslandi... Þú veist kannski eitthvað sem ég veit ekki Haukur minn :-)

1:48 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

SKO! mér finnst að þú eigir að skella þér af þig langar að fara! maður sér nefnilega meira eftir hlutum sem maður gerir ekki heldur en þeim sem maður gerir! og þó svo að ég sé að vissu leyti sammála þessu með afturhaldskommatittina þá finnst mér Vinstri Grænir eini flokkurinn á Íslandi sem á virkilega rétt á tilveru sinni fyrir utan Bláa höndina ;) Þannig að þú færð mitt atkvæði í þessu þó þú fáir það ekki í kosningum kannski... Og svo eiga engar skyldur að fylgja því að mæta á landsfundi í flokkum.. Þarft bara að vera skráð í flokkinn, ekki hægt að gera neinar kröfur til þín frekar en þú viljir :) Kv. Helena

2:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Sunnsa.
Já blessuð skelltu þér á þennan landsfund... ekki það að það sé minn flokkur en þetta verður örugglega gaman:) Já og svo gaman að hitta nýtt fólk:)
En hey er væntanlega að fara að djamma á laugaraginn með hjúkkunum héðan og RVK... væri gaman að hitta þig:)
Halldóra

3:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sunna...þú getur allt sem þú vilt!! ...það er bara að vilja nógu mikið ;)

3:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ferð og rannsakar þennan fund sinistrii veridis fyrir þinn heilaga kardinála og skilar svo skýrslu í nafni guðs enda ertu mær hins heilaga hjarta.

Via deo
Kardinal Innocentius Golgotha

12:49 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ sæta.. þú prófar bara að mæta og sérð hvernig þú fílar þetta.. veist ekki nema prófa - alveg eins og með mat - ÞÚ PRÓFAR ALLT.. öðruvísi veistu ekki hvort þér finnist það gott!!
Kiss kiss, Frú Inga

9:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home