fimmtudagur, apríl 10, 2008

Góðan daginn !

Það er löng og ströng vinnuhelgi framundan.
Sem er jákvætt, því þá líður tíminn hraðar... og þá þarf ég ekki að bíða eins lengi eftir að vera búin í prófum og eiga afmæli.

Ég hef ákveðið að bregða á það ráð að aðstoða ykkur, sauðsvartan almúgann, við val á afmælisgjöf handa mér. Þetta gerði ég einnig í fyrra og það gafst ágætlega.

Afmælisgjafahugmynd #1
Purity Herbs duft-andlitsmaski úr einhverjum þara-yndislegheitum

Afmælisgjafahugmynd #2
Djúsí heilsukodda... zzzZZZZ

Fleiri hugmynda er að vænta von bráðar.

..kúl,
-S.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home