sunnudagur, febrúar 01, 2009

Vöfflur

Mér þykja vöfflur góðar.
Með smá sultu og kannski rjómaslettu. Einusinni vildi ég bara hvítan sykur. En ég hef þroskast. .....allavega hafa bragðlaukar mínir þroskast.



Ég á líka vöfflujárn, ...sem reyndar er stundum notað sem samlokugrill, þrátt fyrir að við eigum öndvegis samlokugrill. Þetta fer allt eftir brauðtýpunni og álegginu.
Það má reikna með að það komi smá ostabragð af fyrstu vöfflunni sem verður bökuð í vöfflujárninu næst.
Og grunar mig að vöfflubakstur eigi eftir að rísa upp til vinsælda á næstu misserum, líkt og lopafatnaður hefur gert - svona í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar.

Það eru til allskyns vöfflur... hjartalaga.. ferkantaðar... með ávöxtum... með sýrópi... belgískar !

Svo má vöffla á sér hárið. Og vöfflað hár er að komast aftur í tísku - allavega ef Galliano (fyrir Dior) fær að ráða :




Einusinni var ég reglulega með vöfflað hár.
Hver veit nema maður fari að taka upp á því aftur ?

-S.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mér þykja vöfflur líka afbragsgóðar.. en ekkert er vöfflujárnið til á heimilinu... úr því verður að bæta... svo gesti megi kæta....HG

12:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vöfffffflur! :-)

kv. JSJ

4:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

uummmm..vatn í munninn.. Ma.

11:04 e.h.  
Blogger Berglind said...

ÞÚ ert vaffla!! :D

6:04 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home