mánudagur, janúar 12, 2009

Afslöppunar-aktívness-helgi




Skíma slakaði nú bara að mestu leyti á í ruggustólnum góða, en við hin vorum spræk.

Ægir kom til okkar á föstudaginn og var yfir helgina. Við fórum út að borða í tilefni af 8 ára afmæli hans um daginn. Kúrðum svo í einni stórri klessu og horfðum á vidjó uppí rúmi, með tilheyrandi nammiáti og hlátri. ....ég skrópaði á staffadjamminu, átti að fara í keilu með vinnuköllunum mínum, en að vera heima með strákunum mínum var bara miiiiiklu betra :-)

Á laugardaginn fóru feðgarnir í bakarí og komu svo færandi hendi til Sunnu sinnar með dýrindis samloku og kókómjólk. Frábært að byrja daginn á svona kósýheitum.
Eftir skemmtilega (eða þannig - haha) verslunarferð í Bónus dúðuðum við okkur og fórum út í snjóinn og gerðum myndarlegan snjókall.
Um kvöldið var matur á Björgum og svo brenna á Þelamörk.


Á sunnudaginn spiluðum við trivial og sequence og skelltum okkur svo í Kjarnaskóg. Það var rosalega fallegt að koma þangað í öllum snjónum - soldið Narnia-legt :)


Það var alveg frábært að fá litla stubb í smá heimsókn. Nú hentar Grímseyjarflugið betur fyrir svona helgarheimsóknir. Vonandi kemur hann þessvegna oftar.

En á meðan höfum við hina "krakkana", Skímfríði og Frostaling. Þau leika sér daginn út og daginn inn, Frosti kallinn hefur yngst um mörg ár við fá litlu svörtu frekjudósina inn á heimilið.



Eigið góðan mánudag, og vinnuviku :-)
Njótið lífsins. Það er yndislegt.

-Sunna.

1 Comments:

Blogger Berglind said...

Veivei! Skemmtilegt og faaallegt fjölskyldublogg :D

4:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home