sunnudagur, desember 07, 2008

Ahhhhh, ....sæla !





Litla kjánakisan okkar hún Skíma skilaði sér loksins heim, seint í gærkvöldi.
Við Árni vorum búin að kemba hverfið gjörsamlega og vorum hálfbuguð af áhyggjum af litlu snúllunni. Veðrið var mjög leiðinlegt, blautt, hvasst og kalt.

Ég var svo leið að ég hafði ekki lyst á að skreyta, sat bara með skeifu og horfði á endurtekið efni á Skjá Einum.
En uppúr 01 í nótt heyrðist lítið mjálm fyrir utan, og við ætluðum varla að trúa eigin augum ! Þvílík gleði ! (já það komu tár, haha)

En nú verða ermar heldur betur brettar upp og skrautið rifið upp og klínt uppum alla veggi :-) Jibbííí !

Í tilefni af endurvakningu jólaanda míns ætla ég að setja inn nokkrar stemningsmyndir frá jólunum í fyrra :







Yndislegt !
Vonandi hafið þið það öll gott. *knús-á-línuna*

-Sunna, the crazy Christmas-cat-lady.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ég veit ekki hvor kisinn er hvað en þessi hvíti er amk með góðan vöxt. virkar svona frekar flottur á því. gott að kisi skilaði sér.

annars mælir vilhelm með 10 piparkökum og hálfum líter af mjólk og jólalögum.. það er best.

3:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

æææ en gott að hún er fundin :)
Knúúúúúúússss
Erla María

4:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

COMMENT HANDA ÞÉR!!

og ég elska þig :D

6:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

takk Thelma mín :) ....þú skuldar samt svona milljóntrilljónbilljón komment..... en þetta var góð byrjun. Knús.

-sunna.

7:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home