laugardagur, febrúar 17, 2007

Ég er björn,

...kærleiksbjörn !

....aaaawwww.... Góðir tímar.

Vakna á laugardögum, skella kókópöffsi í skál og horfa á barnatímann. ......og skríða svo aftur uppí rúm í smá stund í viðbót þegar barnatíminn var búinn og kúra.

Alveg yndislegt !

Mér þótti líka... já og þykir enn, svo gaman að teikna. Tók kast einhvern tímann og teiknaði bara fuglahræður og flamengo-fugla. Svo var ég líka hugfangin af því að teikna Hitler...

Ég var líka ótrúlega smámunasöm og með talsverða fullkomnunaráráttu, tók um leið eftir því ef hinn minnsti hlutur hafði verið færður úr stað í herberginu mínu... meiraðsegja ef um nokkra sentimetra var að ræða. Og ég get sagt ykkur að þegar þetta gerðist þá leið mér einsog herbergið væri í RÚST !

Næst á eftir myndlistinni var mín eftirlætis frístundaiðkun að bregða litlu systir. Jeminn, hvað það var gaman. Hún varð líka alltaf svo óóóóógeðslega hrædd.

Ég vil meina að þessi uppátæki mín hafi hert hana - hún er nefnilega alls megnug í dag. Ef ekki hefði verið fyrir mig væri hún sennilega ógeðslegur lúði með bólur, sem væri hræddur við allt fólk nema vini sína á veraldarvefnum.

En í staðinn varð hún hörkukvendi með fallega húð sem er hrókur alls fagnaðar :-)

Já það er gaman að gera góðverk.. hehehehe....
-Sunna.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ohh...þið eruð svo miklir töffarar!!

11:26 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

heheh vá hvað ég man hvað það var gaman að færa til smáhluti í herberginu þínu, ef þú skrapst smá stund í burtu og sjá hvað það tæki þig langan tíma að fatta það. Shitt hvað þú varst sækó, þetta var spurning um sentimetra ;-)

1:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já systir þín á þér margt að þakka.. það er klárlega only thanks to you hvað það hefur ræst úr henni, hehe

kv. Frú Inga

9:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahha já þetta er klárlega allt þér að þakka Sunna mín! fyrir utan nokkra aðra smávægilega áhrifaþætti í mínu lífi... Thank God að ég varð ekki ógeðsleg og bólugrafinn lúði... hjúkKET... Þessi mynd er hinsvegar soldið rosaleg verð ég að segja... hhrrmmpphhh...

9:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

kærleiksstara!!

uje, good times!

4:25 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home