föstudagur, desember 21, 2007

...Nýtt bloggnafn... sama röddin.

Hehe...
Ég er að reyna að kæta mig. Svo ég verði ekki vélsagargeðsjúklingurinn sem skaðaði Flugmálastjórn.

Já krakkar,... einsog mér gekk nú vel í skólaprófunum (sem áttu að vera erfiðari en FMS prófin btw) ...þá gekk mér ekki eins vel á miðvikud. Náði 2 af 5. Féll með 7 í tveimur - maður verður að fá 7,5 ...svo það munaði einni sp. á báðum prófunum. MOTHA FUCK !!!

Eeeen það þýðir ekki að gráta yfir niðurhelltri mjólk. Ég massa þetta bara í janúar. ...ég veit hvað ég kann efnið vel, og ég finn enn betur núna eftir þennan skell hvað ég vil svaaaakalega mikið klára þetta.
____________________________________________________

En fyrir ykkur sem eruð ekki alveg með á nótunum, þá eru að koma jól. Það er allt reddí hjá okkur skötuhjúunum - jólin mega koma okkar vegna :-) Það er "örlítill" spenningur farinn að gera vart við sig... thíhíhí...

Við verðum í sveitinni á Aðfangadag. Það er yndislega kósý. Ohhh, ég hlakka svo til !!! - er að vinna um helgina svo kannski verður tíminn fljótur að líða :-D

Maður á að líta á björtu hliðarnar. Það er auðveldara og ekki eins orkufrekt fyrir sálina.
Þetta geðheilsuráð var í boði Dr. Sunnfríðar Schuiöth.

-S.

6 Comments:

Blogger Jón Sindri said...

Áfram við!

Annars dreymdi mig draum í nótt að FMS konan hefði dottið í gegnum gólfið. Man ekki hvað ég var að gera út í flugskóla í draumnum en allt í einu bara.. PÚFF konan komin í gegnum gólfið =)

1:02 e.h.  
Blogger Sunna said...

waaaahahaha.. þetta var semsagt dream come true ;-) ...neeeei djók - má ekki segja svona. Hún er örugglega ágætis skinka.

1:05 e.h.  
Blogger Jón Sindri said...

Þú kallaðir hana samt Hitler og sagðir að við ættum að mála á okkur skegg.

Jájá hún er eflaust fín, ég var amk rosalega kurteis við hana.

4:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æhj, elsku baun...

Þú dúndrar þetta næst. Þetta er ekki kapphlaup, heldur maraþon.

(þetta geðheilsuráð kemur frá þeirri sem þú þekkir sem hefur fallið í hvað flestum prófum en hysjar alltaf upp um sig brækurnar & heldur áfram)

:-* Gleðileg jól Sunnan mín & hafðu það gott.

5:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Dear Dr. Sunnfríður Schuiöth...
Life´s a bitch and then we die.
Ég veit að þú munt flengja þessi próf næst. Amk, muntu ná þeim áður en ég næ þessum helvítis strumpum... En, einn daginn mun ég ná þeim og gullformúlan verður að veruleika! Þá skal ég ráða þig til að fljúga með mig Kúbu. Ég er að fá grasofnæmi og þessi helvítis skógur er að fara með mig. Þér verður greitt í Mojitos & Pesos. Any day now...
Þartil þá, keep it real!
Kjartan Galdrakarl
-B

1:33 f.h.  
Blogger Berglind said...

Baráttukveðjur frá PNG !!
Mundu bara; It's not you -it's THEM !
Get hæglega plöggað nokkra ekta hausaveiðara... just say the word..
Lovya
Beggz

1:37 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home