miðvikudagur, desember 12, 2007

...það styttist...

Velkominn Stekkjastaur !



12 dagar til jóla... og ennþá ekkert skraut komið upp heima hjá mér. Mjög óvanalegt ! Ætli ég skreyti ekki bara á Þorláksmessu úr þessu :-)

Litli snúður er kominn til okkar. Hann fékk aldeilis fínt í skóinn í morgun ! Eeeen það var voða erfitt fyrir suma að sofna í gær - þar á ég við sjálfa mig... ég var ofurspennt yfir komu jólasveinanna til byggða ! thíhíhíhí...

Jólagjafakaup eru á lokastigi - og skemmtilegasti parturinn eftir : pakka inn ! Mér finnst það afar skemmtilegt :-)

Eigið góðan dag dúfurnar mínar,
-Sunna.

1 Comments:

Blogger alfa said...

Stekkjastaur!

Hann gaf mér gott í skóinn.. namminamm. ;)

Allar jólagjafir búnar á þessum bæ, nema auðvitað að pakka inn.. og ekki ein skreyting komin upp, né ein sería..! Skömm.

Og svo er ég með handþeytara sem saknar mömmu sinnar.. ég verð að koma honum heim við fyrsta tækifæri! :/

4:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home