fimmtudagur, nóvember 15, 2007

Sumir tala um að "bera hjartað á erminni" ....

...ég ber ónæmiskerfið á andlitinu.

Elskuleg móðir mín spurði mig í gær hvort ég væri ekki frísk og svona ....jújújú það var ég.
...og hvað skeður. Sunni er veikur !

OG ...mjög oft þegar veikindi og stress þjaka mig brýst andlit mitt út í unaðslegum frunsum. Efri vör mín státar nú af frunsu sem er á stærð við Texas-fylki. Sem einsog gefur að skilja er alveg til að bæta lundina.
Aha !

-Sunnster.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

HAha, Texas Lund...
Vona að þér batni sem fyrst :o)
-B

6:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég var svoooo fín í veislunni minni með fínu spöngina mína og það heppnaðist allt rosa vel og næstum allt étið upp til agna! En samt nóg afgangar ef þú hressist á morgun, svo þú getir kíkt í kaffi? maybe baby?!! Knús og kossar til þín söde söde.. og ég á sko eftir að segja þér fullt slúður frá helginni! úú

8:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég elska þig og veit að þú munt standa þig ótrúlega vel í prófunum love you

3:07 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home