sunnudagur, nóvember 11, 2007

Í dag er minn dagur - Sunnudagur

Gærkvöldið var afskaplega notalegt.
Kallinn undirbjó svefnherbergið undir málun og ég datt í þrusu hárskrautsfíling. Bjó til þrjú stykki, sem er rosaleg frammistaða.

Mér finnst SVO gaman að búa þetta til, ...ég hef bara ekki haft neinn gríðarlegan tíma aflögu undanfarið. En ég ákvað að gefa mér tíma í gær fyrst ég var í svona skapandi stuði.

...ohh... það verður ææææði þegar við verðum búin að mála svefnherbergið... Þetta verður svo flott. Við erum svoddan smekkfólk !
Fyrir ykkur sem eruð svo ólíklega að velta því fyrir ykkur þá langar okkur í dökk rúmföt í jólagjöf - dökkgræn helst - eða með dökkgrænu ívafi. Það er eitthvað svo kósý að hreiðra um sig í dökkum rúmfötum, ...dökku kósý laki og sængurfötum. Veit ekki hvað það er... en það er allavega alveg svakalega gott !

takk í dag,
-Sunna.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

váts þú ert búin að blogga svo mikið að maður veit bara ekki hvaðan á sig stendur veðrið! En það er gaman að lesa þetta líka þannig að þetta er nú allt í lagi svosum. Þú veist að ég var búin að panta eina spöng er þakki??? :)

1:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Einhver möguleiki að eitthvað hárskrautið sé rauður Khmeri?

12:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ógisslega flott hárskraut..
bara svona að segja þér það ...
alltaf að kíkja hérna inn, það er svo gaman að lesa hjá þeim sem eru duglegir að blogga...

7:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta var sko ég ... gleymdi bara að skrifa nafnið mitt

7:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú manst eftir ammlisboðinu á sunnudaginn... á milli 3 og 5..;)

5:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home