föstudagur, júní 06, 2008

LOKSINS !

Ævintýrið byrjar í dag !
Fer suður og byrja að undirbúa mig andlega og líkamlega fyrir ferðalagið langa. Er búin að fá ferðafélaga sem mér líst afar vel á. Hef reyndar bara talað við hann í síma, en hann var með góða símarödd og bili dugar það mér. Alveg frábært að lenda á sömu flugum og hann, en hann er einmitt að fara að heimsækja kærastann sinn þarna úti. Greini betur frá kynnum mínum af honum Guðna (sem mig grunar að verði titlaður Guðni snillingur innan skamms) seinna meir.

Það var smá kveðjustund heima í gær. Það komu nokkrir snillingar í heimsókn, takk Ásta, Benni, Alfa og Assa :-D Frábært að sjá ykkur og gott að fá knús í nesti.

Nú og kellingin dreif sig svo loksins í klippingu og litun í gærkvöldi. Og ég er bombshell blonde !!! No joke ! ......Árni var allavega sáttur með þennan Battlestar-Galactica háralit ;-) hehe. *five* Ég var nú líka kát - hef bara ekki verið svona ljóshærð síðan ég var 17 ára eða eitthvað. Gaman að þessu !

En já - ég ætla að reyna að blogga smá úti. En það verður ekki forgangsatriði... Fosters og kengúrustöppur verða forgangsatriði. ÓJÁ ! ....Ekki misskilja, ég ætla ekki að slást við kengúrur. Bara knúsa þær. Myndin þótti mér bara fyndin :-)

...þangað til næst...
ást & friður,

-Sunna.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

SKO....sirfing..blonde girl susssss.....í bikiní sussss ahahha engill góða ferð knúss og kram A&R

8:47 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta verður awesome ferð. Ætla að öfunda þig allan tímann.


- JSJ

9:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Sunna, góða ferð frá okkur öllum á Kjaló. Munum fylgjast spennt með öllum ævintýrum.
Kossar og knús Ásdís fræ.

10:26 e.h.  
Blogger alfa said...

Ég elska þig fallega stelpa. Hlakka til að fá þig aftur heim.. ;*

12:11 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þetta verður rassafílu ferð! það er víst alltaf vont veður þarna, ástralir eru þekktir fyrir að vera leiðinlegir, og svo er bara ömurlegt að fara til útlanda, maður á að vera heima hjá sér en have a good one:)

10:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Bara svona KOss......;)

11:54 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ekkert smá spennandi ferð hjá þér, og segi bara gangi þér vel.

kv, örri

3:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæjaaaa, Vonandi gengur allt vel og þú ert að skemmta þér vel!! Við hérna á klakanum erum orðin óþreyjufull að heyra fréttir af ykkur andfætlingum!! :) KV. Helena og heimagengið :)

2:07 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home