laugardagur, apríl 26, 2008

28 ára....í gær

Jæja, þá er leiðinlegasti afmælisdagur allra tíma að baki. Lá í rúminu með ólýsanlega hálsbólgu og hita í kaupbæti.
Var búin að skipta um vakt við einn vinnufélaga minn svo ég yrði í fríi í dag.... því ég ætlaði að hafa smá vinahitting í gærkvöldi þegar ég yrði búin í vinnunni. En neeeeeeei - í staðinn vorum það bara ég og Frosti og frændi minn hann Panodil.

Svona er þetta stundum.
En það gladdi mig hversu margir sendu mér skilaboð og/eða hringdu. (þið sem klikkuðuð megið vita að ég er að útbúa svartan lista !)
Svo fékk ég tvo risa RISA blómvendi... annan frá mömmu og co. og hinn frá ástinni minni á Grænlandi. Báðir voru þeir liljuvendir, sem mér þótti fyndið..... eeen það er kannski á allra vitorði að þetta eru ein af mínum eftirlætis blómum.

Benni kíkti við með alltof veglegan pakka (skamm Benni) sem innihélt 3 bækur, Warren Ellis snilld, Douglas Adams snilld og Forrest Gump - sem einsog við vitum er margverðlaunuð snilld. Semsagt á heildina litið = snilld :-)

Og loksins fékk ég að opna pakkann frá Berglindi. Búin að slefa yfir honum ooooof lengi. Það má ekki senda manni svona freistingar svona löngu fyrir "stóra" daginn.
Hann innihélt afar hjálplega bók og hitamæli :-) ....thíhíhí..... skýri þetta betur seinna. Og næringu og sturtusápu frá Reniu... sem eru allt yndislegar vörur.... skamm Berglind fyrir að láta mig elska eitthvað ófáanlegt :-) hahaha... En það bætti sannarlega afmælisdaginn að fara í bað og geta notað allar Reniu vörurnar mínar ..... á alveg 4 stykki núna !!! Vúhú.

Takk fyrir mig !

Jæja, farin að hella uppá te og bryðja strepsils. Fun fun fun.

-Sunna gamla

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

jii mér brá alveg þegar ég las ''28 ára í gær''!!! þú getur nú vaddla verið 28 þegar ég er ennþá bara tvítug.. og búin að vera það soldið lengi reyndar.. hahaha. En leiðinlegt að vera veik á afmælisdaginn :( Láttu þér nú batna almennilega og líða vel :) Stórt knúúús frá mér :*:*:*

4:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn í gær :) ...og láttu þér batna ;)
Kv. Harpa

9:58 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home