miðvikudagur, febrúar 04, 2009

Stjörnuspáin mín í dag :



Naut: Þótt þú hafir kannski ekki mikið fé handbært þessa stundina, má alltaf gera sér glaðan dag með litlum tilkostnaði.

En góðar fréttir.
Helgin verður sko án efa ánægjuleg. Ég er í fríi. Ætla að gera glerfínt heima. Svona bara til að undirbúa húsið fyrir að verða lagt í rúst eina ferðina enn... parketleggjum efri hæðina von bráðar nefnilega.
Svo verð ég vonandi komin með saumavél á föstudaginn. Og fer á fyrsta Samlistarfundinn á laugardaginn. Allt að gerast !

Bless í bili,
-Sunna.

2 Comments:

Blogger Berglind said...

Veiveivei saumavél !!
Þetta samlistardæmi hljómar vel, verðurðu þarna sem förðunarsnillingur eða fatahönnuðarsnillingur...
eða bara snillingur ?! :D

6:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Tja, almennur snillingur bara. Hohohohohohohooo :-) ....en aðallega förðunartjélling.

-sunna,

8:28 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home