miðvikudagur, apríl 04, 2007


Hæ umheimur...


Lífið er bara ágætt í dag. Fallegt veður á Norðurlandi og ég er bara að vinna 2 daga í þessari viku :-) Í dag og á morgun.

Ég ætla að hafa það svo notalegt um helgina. Fara í göngutúr, spila og föndra og kyssa kallinn !

Svo langaði mig að sýna ykkur hvað kvenleggurinn í fjölskyldunni minni er afskaplega fríður. Myndin var tekin um þarsíðustu helgi þegar systrahittingurinn var hjá mömmslu.
Það vantar þó reyndar Helenu á myndina... enda hefði myndin þá orðið aaaaalltof falleg. Það hefði ekki verið hægt að horfa beint á hana vegna ljómans. Í alvöru !



...og svo verð ég að sýna ykkur hvað ég á fallega mágkonu líka :-) Hér erum við Berglind á góðri stundu þessa umtöluðu helgi :



Bless í bili,

p.s. Nú hefst niðurtalningin formlega. Þið hafið 21 dag til að finna afmælisgjöf handa mér.
-Sunnhildur.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

og thu hefur 46 daga til ad finna velkomin-heim-Gunnsa-gjof handa mer!!

9:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Voðalega ertu brún og sæt þarna Sunna mín:) Og ja og kannski eitt tjúttkvöld um helgina?? Hljómar það ekki unaðslega??;)
Halldóra
Ps. þú hefur bara 19 daga til að finna eitthvað handa mér... múhahaha;)

11:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home