mánudagur, apríl 09, 2007

Þið hafið 16 daga til að finna handa mér afmælisgjöf !
...múwahahaha...

Afmælishugmynd nr. 2

Afmælishugmynd nr. 3

_____________________________________

Páskarnir eru búnir að vera ósköp ljúfir.
Ég kíkti í afmæli til Kristínar ofurskvísu á föstudaginn. Það endaði auðvitað með dansmaraþoni og tengdum strengjum daginn eftir.
Roooooosalega gaman ! :-D

Laugardagurinn fór í kósýheit og hamborgaraát. Horfði örugglega á þúúúúsund sjónvarpsþætti á tölvunni - var sko í einangrun í svefnherberginu mínu. Rosalega hress pía ;-)
Árni, Ingi og Erla voru félagslynd og spiluðu póker frameftir kvöldi. Sem minn heittelskaði vann að sjálfsögðu.

Við erum semsagt að fara að kaupa okkur Range Roverinn á morgun.

Berglind, a.k.a. yndið mitt hringdi í mig á laugardaginn og ég held í alvörunni að ég hafi aldrei verið eins lengi í símanum. Ég er nefnilega rosalega lítil símamanneskja... það er bara greinilega ekki sama hver er hinumegin á línunni ;-)
Hún gerðist svo enn meiri snillingur en hún var þegar orðin í huga mínum, OG SENDI MÉR PÁSKAEGG :-D Ég var nefnilega e-ð að grenja yfir því að ég fengi örugglega ekki slíkan munað.
Sko, hún þurfti hvort eð er að senda mér pakka, af því hún og Friðrik voru í New York og versluðu heeeeelling fyrir mig af allskyns góðgæti sem mun gera mig ógissla mjóa og fallega ;-)
..hehehe.. og hún laumaðist til að setja riiisalega stórt og fallegt páskaegg með í megrunarpakkann.

TAKK FYRIR MIG ! :-* Þið rokkið !!!

___________________________________

...........svo er ég auðvitað að gleyma að segja frá AÐAL AÐAL AÐAL :
Sunnfríður var djúpt sokkin í hreingerningar á föstudaginn. Með gúmmíhanska uppá axlir og ajax í hárinu.
.......og þá er hringt - frá flugskólanum og mér boðið að mæta í kynnisflugið mitt kl. 18 :-O

Ég þáði það auðvitað. Og Jesús minn, Jósep og María hvað það var gaman !!!

Var á þessari fögru rellu :



....og nú er bara að stíga næsta skref....

I´ll keep you posted ;-)

-Sunna.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Afmælishugmynd nr.4

http://www.amazon.com/Adult-Plus-Size-Banana-Costume/dp/B000GJCJI6/ref=pd_bbs_sr_6/002-2308262-4500001?ie=UTF8&s=home-garden&qid=1176121592&sr=8-6

Beggz

12:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hey - hvaða Range Rover?
Djöfuls flottheit - bara komin á bankastjórabíl

Frú IBB

2:01 e.h.  
Blogger Sunna said...

....þetta var sko svona "NOT" Inga mín - af því árni vann í pókernum... hehehe...

2:35 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home