miðvikudagur, september 16, 2009

Ég er undir þínum áhrifum... Asía.

Ég er hrifin að mörgu asísku. Finnst meiraðsegja asíur góðar, ...allavega á Hlöllabát.

Karate:
Núna um daginn byrjaði ég aftur í karate. Fyrir um 9 árum síðan var ég í karate hjá Þórshamri í Reykjavík, og var meiraðsegja komin með gula beltið.
Nú er verið að endurvekja Karatefélag Akureyrar, sem legið hefur í einskonar dvala í um 10 ár, og ákvað að kella að skella sér á æfingu. Þetta er að vísu ekki Shotokan karate, heldur Goju Ryu karate. Ég vogaði mér ekki að mæta í karategallanum, með gula beltið mitt - þar sem ég var búin að gleyma flestu, að mér fannst, og svo heitir stíllinn annað og hvað vissi ég ?
Upphafskennslan er um margt lík, og ég hef smávegis forskot á hina sem eru að byrja að læra. Það þykir mér voða gott :-) Svoleiðis verður líka grunnurinn sterkur, og einfaldara að bæta ofan á.
Þess ber að geta að ég hef verið að drepast úr harðsperrum undanfarið, ...ótrúlega erfitt að rífa sig svona af stað eftir margra mánaða (ára..?) kósý-leti og ofát, haha.

Sushi:
Sushi er yndislegt. Mér líður vel af því, það er hollt, og svo er líka skemmtilegt að brasa við að borða það á snyrtilegan hátt.
Ég er með dellu núna fyrir því að læra almennilega að búa til sushi. Þetta er soldið föndur, og ég hef gaman af föndri. Og ekki er hægt að snæða allt föndur, sem gerir sushigerð óneitanlega meira spennandi en t.d. trölladeigsföndur.... :-) (hef aldrei skrifað ´föndur´ svona oft !)
Ef einhvern vantar tækifærisgjöf fyrir mig, þá langar mig í sushi matreiðslubók - fyrir byrjendur vitanlega.

Muay Thai:
Við skötuhjúin erum þessa dagana að horfa á Contender Asia. Þar er keppt í Muay Thai, sem er stórkemmtileg íþrótt og gaman að horfa á. Ekki skemmir fyrir að maður kynnist keppendunum aðeins því þetta er jú svona raunveruleikasjónvarpseitthvað, maður eignast sinn uppáhalds keppanda og verður því meira æstur yfir bardögunum. Við æpum stundum uppyfir okkur og kettirnir hrökkva í kút. Gaman að þessu.

Kanebo:
Þegar ég vann í Debenhams sá ég um Kanebo-básinn, og kynntist vörunum þeirra vel. Þetta eru gæði í gegn og ég hef tröllatrú á þessum vörum.
Shiseido rokkar líka - enda einnig asískt merki... haha.

Fatnaður:
Ég er mjög hrifin af fatnaði sem er í asískum stíl. Eitt sinn var uppáhalds sparikjóllinn minn rauður kína-kjóll.... en ég passa ekki í hann lengur. Spurning um að fá sér nýjan bara ?
Einusinni fann síðu á netinu sem heitir chinatowner.com, allskyns föt, mörg fyndin og önnur flott.. enn önnur ljót. Og hef ég verslað þar smávegis af fatnaði. Held að þetta sé lúsiðin stúlkukind sem stendur að baki þessu. ............vona allavega að það séu ekki 4 ára börn með blóðuga putta og garnagaul sem sauma þessi föt.

Við þetta allt saman verð ég að bæta að ég átti japanska pennavinkonu í nokkur ár, og er að leita að henni á facebook. Það hefur ekki borið árangur enn.
Akiko - ef þú lest þetta, heyrðu þá í mér.

Svo langar mig að læra japönsku. Líklega væri samt gáfulegra að læra kínversku... Svona til öryggis ef kínverjar taka yfir heiminn bráðum.

Arigato.
-Sunna.

8 Comments:

Blogger Berglind said...

Vá !! Fallegt blogg Asían mín :-) Þú getur bætt því við að mágkona þín sé asísk - var spurð að því um daginn hvort ég væri frá Kóreu.. hmmmm.. held reyndar að það hafi verið vanþekkingu spyrjandans að kenna frekar en asísku útliti mínu - eða kannski sittlítið af hvoru ;-) Nú og svo hefur þú aldeilis lagt Asíu að fótum þér og ef ég man rétt þá þótti þér Asahi góður þegar við fórum á Haru í NY. Jæja, þá er þetta komment að verða lengra en bloggið þitt, hætta ber leik þá hæst hann stendur!
Love & Knús - Þín Bebbz

2:16 e.h.  
Blogger Sunna said...

hahahahaha já satt - Sapporo er líka góður :-) ...namm nammm....

gaman að þú skildir bæta við þetta.

knús.

2:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Tjahh ég verð nú að bæta við þetta að farskjótur þinn er svo sannarlega asískur líka ;) litla sæta Toyotan.
En mjög skemmtileg færsla.

P.s oooo mig langar á HARU.. :(

Helena

11:24 f.h.  
Blogger Sunna said...

Já Helena, það er satt. .....alltaf bætist við. Ég verð orðin hálf-skáeygð áður en yfir lýkur.

....æjjji skellum okkur bara á Haru.

1:08 e.h.  
Blogger Jón Sindri said...

Ég hlakka óstjórnlega mikið til þess að geta komið í heimsókn til þín með spýtur og múrsteina fyrir þig til að brjóta og mölva í öreindir, mér til sýnis og gamans.

kv.
Karate-Jón

2:32 e.h.  
Blogger Sunna said...

jón - díll, vertu hræddur !

2:40 e.h.  
Anonymous Ásta (Ástríður húsfreyja í Neskoti) said...

Svona eiga blogg að vera! Hættu aldrei að deila spekúleringunum þínum með okkur hinum, þær eru allt of áhugaverðar og skemmtilegar til að kúra leyni í heilanum þínum.

2:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

"Kína-kjóll" kallast Qipao, eða Cheongsam af Cantonese fólki. Endilega halltu áfram að fræðast rétt um Asíu.

3:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home