fimmtudagur, ágúst 17, 2006

...bráðum fæ ég humar...

Ég fékk að skreppa aðeins í bæjinn áðan úr vinnunni.
Lagði bílnum og leit útum gluggann og sá þar merkingu í glugga sem hljóðaði svona :

Davíð Kristinsson, næringar- og lífstílsþerapisti, golf- og einkaþjálfari.

...mér finnst að hann ætti að taka að sér förðun og ásetningu á gervinöglum líka.
Og kannski barnapössun og garðslátt ??!

Jeminn..

Jáhh börnin góð það er ekki öll vitleysan eins.

Eeeeen, on a lighter note...

Á morgun verður lagt af stað í sextugsafmælisferð tengdó.
Hin mikla Helena Dejak á afmæli á morgun.
Við fljúgum öll suður og keyrum svo uppá sjálfan Sprengisand. Þar gistum við á nýja lúxushótelinu sem opnað var fyrir skemmstu.
....mmmm.... humar, heitur pottur, svíta og aaaaafslöppun.

Get ekki beðið :-)

Á meðan megið þið öll bara eiga ykkur, getið blaðað í Lesbók Morgunblaðsins eða eitthvað.

Frankly my dear I just don´t give a damn !

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Svo á ég líka bráðum ammli!! og ég heiti líka Helena :) En hafið það voðavoða gott um helgina, ég verð með nefið niðrí Lesbók í höfuðstöðvum Morgunblaðsins alla helgina... :/ Aldrei að vita nema ég geri krossgátuna... ég læt þig allavega vita með framhaldið og hvernig gengur... *hrollur/skjálf*

11:20 e.h.  
Blogger Ragnhild said...

hey hey, hvernig var Miami Vice myndin? eða horfdidu bara á Árna?

11:03 f.h.  
Blogger Leifið said...

Þessi gaur þarf eginlega að stofna útibú í Reykjavík.
Djöfull þarf ég að komast í svona lífstílsþerapíu, hann er í algjöru fucki hjá mér. Ekki verra að geta æft sveifluna í leiðinni.

6:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home