föstudagur, október 27, 2006

Risin upp frá dauðum...

Listamaðurinn fyrrum þekktur sem Sunna er aftur á meðal lifenda.
Mun hún héðan í frá kalla sig Fönix Björg Birgisdóttir !

God damn it hvað það er glatað að vera lasinn.
Ég fór útúr húsi í gær í fyrsta sinn síðan á laugardaginn. Var ekkert búin að fá að koma við fallega snjóinn.
Sat bara við gluggann og horfði út og ímyndaði mér að ég væri að grípa snjókornin með tungunni. Það er svo gaman :-)

Eeeen það sem á daga mína hefur drifið síðan síðasta blogg var ritað er þetta:

Fór í dýrindis dinnerboð til Benna míns á föstudaginn. Hann bjó til kjúklinga Crépes... Og vá hvað það var gott ! ...sem betur fer því þetta var nokkurnveginn síðasta kvöldmáltíðin mín fyrir veikindi. Hmmm.... ætli The Benmonster hafi eitrað fyrir mér ??? Er hann minn Lex Luthor !!??

...ehemm..
Á föstudaginn eignaðist ég líka nýjan frænda. Kristjana, systir mín og hetja, eignaðist sitt sjötta barn í landi Margrétar Þórhildar.
Inni-inni-innilega til hamingju með það :-D

Ég hef sterkan grun um að hann verði skírður Sunni.
(ég er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann)

En sjáiði hvað hann er sætur ! Jeminn... Það er óhætt að segja að maður fái undarlegan verk í móðurlífið við að sjá svona mynd.



....ooooohhhh... so sweet.

Já... svo var ég bara veik.
Minn góði maður er frábær hjúkka - stjanaði við mig og varð við öllum mínum óskum, sama hversu skrýtnar þær voru. T.d. "Mig langar í stappaðar kartöflur með salti" (kl.23:00) .....já hann er bestur hann Árni minn.... *væm*

Týpískt að verða lasin þegar maður er núbúinn að kaupa rándýrt líkamsræktarkort og heita sjálfum sér því að mæta ROSA VEL !
Náði samt að mæta einusinni áður en ég varð veik.
Ooog fór í gær að lyfta - nú er allt að gerast krakkar mínir ! Allt að gerast.

Læt þetta rant duga í bili,
-Fönix.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Neisko, hvað hann er sætur. Til hamingju með lillan. Það er sko alveg hægt að heita Sunni þegar maður býr í Danmörku. Manstu bara eftir Sunna sem hrinti okkur í sjóinn & stal fötunum okkar.

Ussss, hann var nú meira hrekkjusvínið. & mig minnir líka að hann hafi heitið Suðmundur & verið kallaður Sunni.

P.s. Söngvarinn í Raveonettes heitir líka Sunni. Við erum geðveikt góðir vinir.

4:14 e.h.  
Blogger Sunna said...

..þetta er satt hjá þér.. ég var bara búin að blokka út þessa minningu - ég var nottla traumatized eftir þetta ;-) ..hehe meira hrekkjusvínið hann Sunni. HA ! Helvítis kallinn...

5:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin aftur fra daudum.. En thu veist ad thu attir ad risa a thridja degi aftur upp fra daudum.. ekki niunda degi... ;) thu manst thad bara naest vinan.. hehe.. og til hamingju med litla fraenda, hann er alveg precious..

7:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

4:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sunna sæta,stinna,seiðandi,
skjælbrosandi,
stórkoslega,smekklega,snyrtilega,
skemmtilega,samúðarfulla,sáttfúsa,
stynjandi,skandinavíska,skapstóra,
kellibjalla,skipulagða,skrautlega,
snjalla,sparsama,spaugsama,sterka,
stríðna,sálfræðilega!

4:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með litla frændann Fönix mín...eða minn (hvernig sem þú vilt hafa það). Merkilegt nokk þá varð ég líka veik stuttu eftir að ég fékk líkamsræktarkortið mitt - hmmmm - gæti eitthvað tengst uppreisn líkamans sem hefur þjónað sem musteri þess óholla svo lengi!!

9:04 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hey - ég tek undir með Önnu Lind.. hann er geðveikt Sunna legur þessi ungi.. bara sætur sko

Frú Inga

11:19 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home