föstudagur, maí 25, 2007

Jibbíí skibbí Mc.Fribbíííí...

Árnmundur has returned !

Hann kom heim í gær frá Grænlandi - ég bjóst ekki við honum fyrren á sunnudaginn. Svo að það var virkilega óvænt og yndislegt að fá að knúsa hann í gær. Þrátt fyrir fúlskeggjun og svitalykt þá er hann alltaf fallegastur... ójá.

Þetta var rosa góð "innáskipting".
Mamma og Helena voru búnar að vera hjá mér síðan á Þriðjudag og fóru heim í gær... Og svo kom Árni heim :-)
Það var líka ekkert smáááá gaman að hafa þær mæðgur hjá mér. Þetta var sannkölluð dekurheimsókn. Átum Nings, fórum út að borða, fengum okkur ís, sötruðum ljúfa drykki og höfðum það yndislega notalegt. Takk fyrir mig :-* KOMIÐ FLJÓTT AFTUR !!!

Svo er kannski helst frá því að segja að ég og mín elskulega og fríða mágkona erum byrjaðar í MEGA bindindi. Ekkert nammi, gos, snakk eða slikkerí þangað til við förum til New York í ágúst.

Það eru ströng viðurlög við falli: 100 armbeygjur og 100 magaæfingar. Hehehehehe...
En verðlaunin í lokin er haaaaaasarkroppur ! Hehehehe... Hann Justin á sko ekki eftir að komast hjá því að taka eftir okkur. Þyrftum að búa til skilti sem á stæði : "Justin Timberlake - Eat your heart out !"

....ég hlakka óótrúlega til þessarar ferðar.

..................núna er myndavélin komin heim svo að ég get farið að dúllast við að setja þær á síðuna. Skal reyna að drífa í því... *ehemmm*

-Sunna.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ohh ég er líka í 'átaki', sem hjá mér þýðir það að ég drekk ódýrt bónus light cola.. sem er svo skrytið á bragðið að þeir borga næstum með því. Svo fer ég í ræktina 'næstum' því daglega, en stækka bara!

pant vera eins og á þessari mynd! pant pant pant pant pant!

5:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hei halló! Ég var ekki látin vita að bindindið væri hafið! Ég er enn að háma í mig nammi, snakk, pítsur og kók, sérstaklega meðan ég var lasin!
En ég vil líka bindindi, ég ætla líka að vera dugleg svo verðum við að byrja að æfa okkur líka! Ekki seinna vænna, ég vil vera skvísa í Danmörku ;-)

11:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nafnlaus er Ástan litla, veit ekki hvað gerðist eiginlega..

11:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Er reglulegur lestrarhestur á blogginu þínu Sunna mín og nýt hverrar setningar. Alltaf skemmtileg. Kveðja Ásdís fræ

10:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvar erteigilega?? Ég er búin að vera að klepra í vinnunni, farðu nú að koma með eitt blogg til að skemmta mér :)

8:12 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home