mánudagur, maí 21, 2007

Jæja, heiðursinúítinn er snúinn aftur !

Þetta var alveg stórkostleg ferð ! Fyrri vikan einkenndist af mikilli afslöppun og góðu veðri. Svo færðist fjör í leikinn þegar tengdó og Ægir litli komu :-)

Myndavélin er ennþá á Grænlandi svo að ég get ekki sett inn neinar myndir strax. ....en ég lofa að vera eeeextra snögg að því þegar þar að kemur.



.......ætla að láta myndirnar segja ferðasöguna, svo að hér verður engin nánari útlistun á ferðinni, ...nema ég auðvitað verð að segja AÐ ÉG SÁ ÍSBJÖRN !!! Það var alveg svakalega gaman. Fékk tár í augun og allt ! ...thíhíhí...

Svo var ég að fá rosa góðar fréttir - Mamma og Helena ætla að kíkja til mín á morgun og vera fram á föstudag. Það er algjör snilld !

...mér hundleiðist nefnilega að vera svona ein heima (Árni er sko ennþá á Grænlandi).
Það verður því standandi stelpupartý heima hjá mér næstu daga ! Vííííí :-D

....þetta er allt í bili....
-Sunna.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin heim Sun Sun mín! Hlakka til að sjá myndirnar (af því að ég ætla að láta þær nægja til að svala Grænlandsforvitni minni!!)
Erla PErla

1:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home