föstudagur, júní 08, 2007

Yo yo...

(hvenær kemur nýtt jójóæði ?!)

Jæja, Sunninskí er mætt í vinnuna á þessum líka ókristilega tíma. ..var samt vöknuð kl.06... skellti mér í hjólagallann og brunaði útá flugvöll. Með júníformið upprúllað í bakpokanum - þá krumpast það ekki sjáiði til.
Það er rosa fín aðstaða hjá okkur í vinnunni. Alveg hreint ágætis sturta og riiiiisa spegill og góð birta.

Núna er ég því súúúúper vakandi og mega hress ! :-D
En er samt ein heima um helgina...pínu "foj"... en ég jafna mig. Nota tækifærið og klippi á mér táneglurnar útum allt, dreifi úr kremunum mínum og skil klósettsetuna ALLTAF efir NIÐRI !!! Múwahahahahaha...

Annars er það helst í fréttum að ég er búin að setja inn Grænlandsmyndirnar. Vinsamlegast skoðið og skrifið eitthvað fallegt við hverja einustu mynd.

p.s. Gulli og Hjálmar eru æði.


-Sunna.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Búin að skoða myndirnar, ekkert smá flottar! :) vill samt fá skýringu við hverja mynd... væri aðeins betra.. þú ferð kannski bara í það verkefni við fyrsta tækifæri!

7:42 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hvernig líst þér á að taka mig með í næstu Grænlandsför? Mig langar rosa mikið til Grænlands.. væri gaman að fara með einum svona alvönum eskimóa eins og þér! ;)

p.s sé þig kannski bara á morgun..?

12:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvar ertu eilega??

Halldóra

11:53 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home