fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Krútt krútt krútturassar....

Sunnfríður er í krúttlegu skapi í dag.

Það var krúttlegt að vakna í morgun og sjá að við sváfum öll í rúminu - litli stubbur skriðinn uppí :-)
Það var krúttlegt hvað kisinn minn strauk sér mikið utan í mig meðan ég var að hafa mig til í morgun (held reyndar að það hafi aðallega verið til að sníkja eitthvað gotterí).

Ég var glöð þegar ég mætti í vinnuna og sá að Express þotan hafði farið á tíma - svo að ég þurfti ekki að standa í því bulli.
Ég var glöð þegar ég sá að vaktstjórinn minn í dag væri Eiður - hann er snillingur og ég var á vaktinni hans í sumar, en nú sé ég hann sjaldan.

Ég var sátt með sjálfa mig af því ég mundi eftir að taka með mér morgunmat.
Ég var sátt með sjálfa mig vegna þess að ég átti hvorki slæman hárdag né meiköppdag.
Ég var sátt með sjálfa mig vegna þess að ég mætti á réttum tíma í vinnuna - þrátt fyrir að hafa farið seint að sofa.

Það er löööng vinnuhelgi framundan og ég veit að ég verð búin á því á sunnudagskvöld. En næsta vika verður auðveld - og til að bæta hana enn frekar þá kemur Ásta mín á fimmtudagskvöldið :-D ...það er snilldin eina þarsem ég verð í fríi alla helgina. Hef lúmskan grun um að við stöllur munum heimsækja Jólalandið og fá okkur Brynjuís.

Mig langar að enda blabla dagins á sömu krúttlegu nótunum. Fékk myndina lánaða af síðu stóru systur... fannst hún svooooo sæt. Þetta eru semsagt yngstu frændsystkyni mín - Hekla María og óskírður Bachmann.
Er hægt að vera svona mikið krútt ?!?



Takk í dag ljúflings fólk,
-Sunnfríður.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

gott að heyra að þú sért svona glöð krúttið þitt.. hehe

Kv. Frúin í Hamborg

2:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

æji ég er líka í krúttlegu skapi í dag, krútturasinn þinn! :)

3:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu krútturass... ertu til í að senda mér heimilisfangið ykkar skötuhjúa svo ég geti nú sent ykkur jólakort?

Ein ást..

Frú Inga

10:58 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu krútturass... ertu til í að senda mér heimilisfangið ykkar skötuhjúa svo ég geti nú sent ykkur jólakort?

Ein ást..

Frú Inga

10:58 f.h.  
Blogger Sunna said...

Það er: Gránufélagsgata 33, 600 Ak. :-)

6:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þetta er æðisleg adressa..

Kv. Frú I

1:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hlakka til að sjá þig glaða sólskinsstelpa. Ekki veitir af svona jákvæðri dís á þessum köldu og myrku dögum.

9:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home