mánudagur, nóvember 06, 2006

Sló - sló - slóvenía...

Erum að fara suður í kvöld og til Ljubljana í fyrramálið. Jæks - get ekki beðið. Þetta verður ekkert smá ljúft. Alltaf gaman að ferðast með kallinum. Svo er líka svo fallegt í Slóveníu.



___________________________________________________

Redneck afmælið hjá Benna var SNILLD !!! Þið munuð öll deyja þegar þið sjáið myndirnar. Held að allir hafi skemmt sér alveg svakalega vel - sumir aðeins of vel. Hehehehe....
Set myndirnar frá þessu klassa boði inn þegar við komum heim frá Slóveníu - ásamt myndum þaðan. ÚÚÚ spennó :-)

...annars er bara alveg brjálað að gera í vinnunni. Ég vinn til 21:00 og hoppa svo upp í allra síðustu vél suður.
Er aðeins að svitna í lófunum í sambandi við að ég sé að gleyma að gera eitthvað áður en við förum... Eeeeeen það hlýtur að reddast.

hilsen, pilsen,
-Sunnitza.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Góða ferð frá Hönnu frænku og Antonio,hlakka rosalega mikið til að skoða myndir! Núna eru þið nær okkur,hoppiði ekki bara yfir? hehe nei það gengur víst því miður ekki alveg,verður bara næst er það ekki! Annars fæ ég heimsókn núna í enda nóvember,frænka mín kemur frá Þýskalandi. Og ég kem heim 10.des. jei hlakka endalaust til,við sjáumst hressar og kátar yfir hátíðarnar:) Kossar og knús frá Ítalíu*** Hanna panna pottur og panna.

10:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahaha hlakka otrulega mikid til ad sja myndirnar ur afmaelinu! JEIJJ hehehehe... hljomar skemmtilega! En hafid thad alveg yndislegt uti dufurnar minar! Eg var ad koma fra New York og skemmti mer konunglega!!;)
Knus og kossar

4:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Öfund öfund!! Góða ferð og skemmtun og reyndu svo að hafa hemil á frændunum ;) Bið rosa vel að heilsa öllum þó aðallega Matjaz!
knúsi knús
Erla

12:02 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home