sunnudagur, nóvember 26, 2006

Ohhhhh....

Strákarnir mínir eru mestu krúttin. Ekkert smá notalegt að vakna með þá báða í
litla rúminu okkar. Hehehehe...


Ægir Daði átti nokkur gullkorn í gær...
Vorum að horfa á "Tekinn" og Ægi hefur greinilega fundist hann kannast aðeins við Audda af því allt í einu hrópar hann upp :

"Jaaaááá ! Þetta er KALLINN úr Strákunum !!!"

Mér fannst þetta svo yndislega fyndið og þversagnakennt :-)

Svo lék hann sér að því að hálfkyngja núðlum og draga þær aftur upp úr hálsinum. Hann sagðist vera að galdra... Ehemm... Þetta endaði auðvitað með því að hann fór að kúgast og hann hætti.

Lillinn ætlaði að fara heim í gær - en ákvað að vera eina nótt í viðbót af því hann sagði að annars myndi ÉG fara að grenja :-) hahaha... Ég var voða glöð að hann hætti við. Gott að hafa hann.
Hann er litli húnninn minn - þetta tekur auðvitað allt sinn tíma - svona stjúpbarna stjúpmömmu dæmi. .....en við erum fínir vinir og ég er mjög bjartsýn með framtíðina !



Lovely :-) Myndin að ofan er úr Króatíuferðinni okkar, september 2005. Við förum pottþétt aftur þangað bráðum - á sama stað. Þorpið Baska á eyjunni Krk. Svakalega fallegt og mjög ódýrt að njóta lísins.



Bless í bili.... ég er farin að vinna og láta mig dreyma um gullnar strendur.

-Sunna.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

sko, það er ógeðslega töff að vera stjúpmamma.. það er flottasti titillinn

Knús, Frú Inga

1:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl Sunna mín, er í fríi í dag og bún að skoða allt þitt nýjasta nýtt, skrifa Kristjönu og tékka hvort Hanna sé á Skype. Maður er bara bissý rúmlega 10. Það er þakkarverð öll þessi tækni. Flottar myndir frá Slóveníu, greinilega land til að heimsækja. Einnig alltaf gaman að lesa bloggið þigg, gömlu munnvikin á frænku þinni lyftast upp heheeeeeeeee. Hann á gott litli strákurinn hans Árna að fá þig sem stjúpmömmu, það eru örugglega ekki öll börn jafn heppin. Þú hefur alltaf haft gott lag á börnum og komið fram við þau af virðingu og væntumþykju og ég held að það sé galdurinn "að sjá þau og virða sem manneskjur". Mér finst alltof margt fólk vilja eiga börn en ekki nenna þeim. Þá er pistill dagsins búinn. Ástarkveðja þín fræ Ásdís
Ps.Þarf að fara að horfa á Grey´s Anatomy, missti af síðasta þætti og hef ekki á heilli mér tekið síðan XX

10:24 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home